

|
|
Velkomin
Gítarskóli Ólafs Gauks hóf starfsemi 1975.
Skólinn er opinn öllum þeim, sem hafa áhuga á að læra gítarleik. Á það jafnt við
um börn og unglinga sem fullorðið fólk á öllum aldri, enda hefur reynslan orðið
sú, að um helmingur nemenda skólans er úr hópi hinna yngri, en hinn helmingurinn
eru fullorðnir, sem bæði setjast í skólann sem algerir byrjendur eða með
einhverja
undirstöðu, og finna þar ljúfa dægradvöl og lífsfyllingu.

Innritun
Innritun í skólann fer fram tvisvar á ári,
enda er kennslu skipt í tvær annir á vetri hverjum. Hin fyrri hefst í
septemberlok eða októberbyrjun og stendur fram undir jól. Hin síðari hefst í
janúarlok eða febrúarbyrjun og stendur til apríl-maí. Smelltu á 'Innritun' hér
til hliðar fyrir nýjustu upplýsingar.

Létt og leikandi
Námskeiðin í Gítarskóla Ólafs Gauks eru létt og leikandi og miða við að nemandinn hafi bæði gagn og gaman af náminu.


|
|


| |
|
|
|